~~~~~ L A S - C H I C A S ~~~~~

30.11.05

Hennar hátign hafði þetta að segja!

~HOLA~


Próf....próf....próf....ohhhh......klárlega leiðilegasti tími ársins!!!!!
Mér finnst ég alltaf eyða of miklum tíma í e-h efni sem er til prófs og er alveg viss um að það eigi eftir að koma mér að litlu sem engu gagni í framtíðinni nema fyrir þetta tiltekna próf, en svo þegar ég þarf að svara í símann þegar ég er að læra eða fæ mér að borða þá finnst mér ég vera að missa dýrmætan tíma fyrir þetta lífsnauðsinlega próf.
Dísös.... afhverju er búið að finna upp flugvélar, geimflaugar, milljón lyf fyrir milljón sjúkdómum og þessháttar en ekki eitthvað til að hjálpa fólki að muna betur það sem það er að læra, ég væri líka til í pillu sem myndi gera mann fullan af áhuga og þorsta í það sem maður er að læra. Ég er viss um að það er búið að finna þetta upp bara þeir vilja ekki setja þetta á markaðinn vegna einhverrar asnalegrar ástæðu.
Prófin skemma fyrir mér jólaskapið, væri sko pottþétt byrjuð að hlust á jóladiskana og horfa á jólamyndir ef væri ekki fyrir þessi próf.



En það koma líka ljósir punktar í tilveru mina t.d. kætti það mig mjög mikið þegar það koma maður heim til að gefa okkur ruslatunnu, hvílík gleði, aðra gjafmildi man ég ekki eftir frá hveragerðisbæ. Stór og glæsileg tunna sem auðveldar ruslaköllunum örugglega mjög vinnuna sína.

~Adíós~

28.11.05

Hennar hátign hafði þetta að segja!

Svangur



Mig langar svooo mikið í 'Chicago Club' samloku á Prikinu að ég er að DEYJA! Ég krefst þess að það fari einhvur með í Bófavíkina og panti eina slíka handa mér STRAX! Ég vil fá kokteilsósu og Fanta með.

Takk fyrir það. Ég borga ekki í bensín en kanski blíðu.
Kveðja, Anna.
Hennar hátign hafði þetta að segja!

Hola

Takk fyrir klárlega skemmtilegt kvöld mínar kæru chicas

Stiklað á stóru:

Einstaki kúkurinn hitti klóið, það voru fundir

Bar-prúttarinn lét grína sig það var klárlega plott

Gyða Hrönn hefði viljað taka undir.

Hryssa drakk mjólk og mysu (nott) .

Skarpa 23+Jacson like this allar stundir

Ása-pjása sagði: rósavínið er klárlega gott.

Betty-wetty brummaði yfir móa og grundir

Mína-mús í naríum, fannst hún bara hott ;)

Adios :)

23.11.05

Hennar hátign hafði þetta að segja!

Lazy Bitches

Þið eruð innilega lélegar við að blogga e-ð kjellurnar mínar. Og þá kemur sér vel að eiga eina sem aldrei sefur.
Nú er klukkan að ganga tvö og ég enn glaðvakandi eins og belja að vori til. Kjellingin ný búin að klára frönsku verkefni sem átti að skilastí dag í allra seinasta falli (vonandi að Geimvera taki við því). En þá er næst á dagskrá að klára að lesa fjórða hluta Sjálfstæðs Fólks. Bara 100x síður eftir.



Ég ákvað að koma með eina soldið meira sexí fyrir ykkur núna. Samt eiginlega alveg spes handa Gyðu sko.

21.11.05

Hennar hátign hafði þetta að segja!

Bleikabloggid

 
cerebral palsy
cerebral palsy